top of page
Writer's pictureBjörn Berg Gunnarsson

Er á­stæða til að sleppa greiðslu­dreifingu þessi jólin?

Nú styttist í mánaðamót, þau síðustu áður en jólamánuðurinn gengur í garð. Búast má við að hátíðirnar verði með breyttu sniði þetta árið vegna kórónuveirunnar sem líklega mun auka tilteknar tegundir neyslu og draga úr öðrum. Búast má við að vefverslun aukist enn eitt árið en minna verði sem dæmi um jólatónleika, veislur og veitingahúsaferðir auk þess sem verslunarferðir til útlanda þurfa að bíða betri tíma.


Það verður þó tæplega umflúið að eitthvað munu jólin kosta. Almennt eykst kortavelta okkar Íslendinga um í námunda við fjórðung í mánuðinum og svo virðist sem þessi auknu útgjöld komi mörgum alltaf jafn mikið á óvart, þó svo jólin séu almennt árlega og þá í desembermánuði. Meðal afleiðinga þess er að greiðslum og reikningum er dreift, yfirdráttur er nýttur og vandamálinu frestað með tilheyrandi kostnaði.


Ekki þarf að fjölyrða um hversu óheppilegt slíkt er en fjölyrðum nú samt. Undanfarin ár hefur fjölgað þeim leiðum sem fólk hefur til að dreifa jólaútgjöldunum og getur slíkt eflaust hljómað freistandi við fyrstu sýn. Með því að grípa til slíkra ráðstafana verða jólin þó að líkindum mun dýrari en ella. Auðvelt á að vera að nálgast svokallaða árlega hlutfallstölu kostnaðar í smáa letrinu en hún gefur til kynna kostnaðinn við greiðsludreifingu sem numið getur tugum prósenta. Auðvitað vonum við að allt fari hér á besta veg og það er ástæða til að halda að svo verði. En óvissan er mikil og atvinnuástandið ótryggt.


Jólagjöfin í ár

Því tel ég ástæðu til að stinga upp á breyttum jólum þetta árið. Ef einhver kostur er og fjárhagsleg staða býður upp á skulum við gefa sjálfum okkur þá jólagjöf að dreifa engum greiðslum og engum reikningum. Reynum, ef kostur er, að leggja sem mest fyrir af útborguninni nú um mánaðamótin og lágmarka neyslu í nóvember. Nýtum hugmyndaflugið hvað jólagjafir varðar, þær þurfa ekki alltaf að kosta hvítuna úr augunum. Það getur sömuleiðis farið saman að spara duglega og huga að kolefnisfótsporinu. Í stað þess að gefa hluti má gefa upplifun. Í stað þess að gefa nýtt má gefa notað og þar fram eftir götunum. Vissulega hjálpa neysluútgjöld fjölda fyrirtækja sem beðið hafa skaða af kórónuveirunni, eins og sást glögglega í sumar. En það er þó, í mörgum tilvikum, óþarfi að steypa sér í skuldir í neyslugleðinni.


Þó svo Oscar Wilde hafi sagt að sá sem lifir ekki um efni fram hafi ekkert hugmyndaflug skulum við nýta hugmyndaflugið í sparnað þessi jólin.


Greinin er birt með leyfi Íslandsbanka og birtist fyrst á Vísi.

bottom of page